VIVA CHILE!

FELIZ 18 A TODOS LOS CHILENOS!

Þann 18. september var lýðveldisdagur CHILE og mikil hátíðarhöld þar í landi.
Var þar einmitt í fyrra á þessum tíma. Væri ekki slæmt að vera þar núna!

Veðrið

Officially ógeðslegasta veður ársins, í dag, þriðjudag.

Viðbjóður!

Til að lífga aðeins upp á lífið hef ég ákveðið að kasta hér inn videóuppskrift af heilsusamlegum, tælenskum rice paper vorrúllum ;)

Helgin sem leið

Þá er helgin búin og streð vikunnar hefst.

Frá miðvikudeginum hafði ég haft í heimsókn tvo krakka frá Þýskalandi en hafði að vísu afskaplega takmarkaðan tíma til þess að sinna þeim. Það var samt fínt, fyrir utan það að ég hafði lánað þeim rúmið mitt og ég sofið í sófanum, og á endanum voru botninn hruninn í rúminu til fóta… og ekkert haft fyrir því að þrífa diskana eftir sig heldur! En! Það hefði alveg getað verið verra og svona málum er bara kippt í lag með hamari og nöglum, og svo svampi og uppþvottalögi!

Á föstudaginn kíktum við Hector og Ragnar vinur hans aðeins út á djammið í tilefni fyrstu fríhelgarinnar minnar, en mest var þó étið :-p Ég byrjaði á að fá mér samloku áður en ég fór út í bæ, svo fengum við okkur  Hlölla eftir fyrsta öllarann, svo annar öllari, og farið svo á Pizza Pronto! :-p EHeheHe en maður vaknaði þó ekki þunnur daginn eftir, sem var mjög stór plús, miðað við að hafa blandað saman rauðvíni, bjór og svo rommi í kók!

Á laugardaginn var bara gert mest lítið. Ég bjó til nýja síðu handa mömmu og pabba, en nú eru þau með eina síðu fyrir hrossaræktina og sú sem ég gerði núna er fyrir hundaræktina, en það fæddust 9 labrador hvolpar hjá okkur 10. ágúst og held það sé bara einn hvítur hundur eftir, en hérna er síðan: http://labrador.lytingsstadir.com !

Á sunnudagsmorguninn fór ég svo á Hellu að kíkja á hvolpana, sem eru GEEEÐVEIK krútt orðin! Það er einmitt video á síðunni sem ég var að skrifa niður, af þeim! Fór einnig að sækja gleraugun mín og alls konar dót sem ég hafði gleymt á Hellu.

Og nú er ég komin í Tax Free aftur :-( Það á síðan víst ekkert að loka því fyrr en í OKTÓBER!

Fyrsta færslan í nýju bloggi

Jæja þá er ég komin með besta nafnið á bloggið mitt; http://thrudur.bakpokinn.com ;-)

Það er allt gott að frétta. Það gengur allt vel í leiðsöguskólanum þó mér finnist örlítið erfitt að halda mér vakandi í grasafræðinni að vísu… Ekki beint inni á mínu áhugasviði, en aðrir tímar eru bara nokkuð skemmtilegir og áhugaverðir.

Svo er líka tími minn í tax refund búinn, en þá tekur upplýsingamiðstöðin við.