Vetur konungur mættur

Látum okkur nú sjá. Ég hef ekki bloggað í fleiri aldir. Þetta er svona ef enginn kommentar hjá manni, þá gerir maður ráð fyrir að hér komi ekki við einn einasti lifandi maður. En þó maður haldi þetta kannski fyrir sjálfan sig, til þess að halda utan um atburði líðandi stundar og svo framvegis… þá skrifar maður nú bara samt.

Það er farið að styttast töluvert í Suður Ameríkuferð og í dag eru aðeins 15 vinnudagar eftir, ef við verðum ekki heimsend. Það er búið að vera mjög mikið um heimsendingar síðustu mánuði og þar sem ég er ekki búin að vinna hér í eitt heilt ár og borga morðfjár í verkalýðsfélag alla tíman fæ ég engar bætur ef ég missi úr vinnu, það eina sem ég fæ er tekjutrygging frá kommúnunni, sem eru um 9500 dkk fyrir skatt – sem er ekki neitt eftir skatt!

Það er búið að vera mikill bardagi að reyna að safna pening fyrir ferðina til Suður Ameríku, og í raun búin að sætta mig við þá hugmynd að ég fari ekki með neinn uppsafnaðan pening út – bara reyni að lækka skuldirnar mínar eftir bestu getu áður en ég fer út. Gengur misjafnlega í hallærinu hér. Og ekkert gengur heldur að fá pössun fyrir Nils, hundinn minn. Svo það má segja að maður sé frekar stressaður og lifi í óvissunni þessa dagana.

Að öðru – fór til Álaborgar á sunnudaginn, það var fjör! Skrapp bara stutt þar sem það voru ókeypis rútuferðir um allt Norður Jótland of var lent í Álaborg um 11:30, tók svo rútuna heim tæplega 17:00. Tíminn var vel nýttur! Tvær ferðir á hins sárt saknaða Subway, þar sem bræðingur í honey oat, með southwest sósu og majó var íslenskt súkkulaði!! Hvílík hamingja! Nóa Pipp… Mmmmm! Svo var kíkt í “Stórcentrið” þar sem ein stærsta verslun sem ég hef komið í – BILKA. Ég vissi ekki hvar ég ætti að byrja! Er allt ódýrt, og svo risastórt svæði að maður gæti afar auðveldlega eytt þar 2-3 klst að þræða í gegnum þetta allt. Svo hitti ég líka Kr. Helga sem býr hér í Álaborg – gott að hitta kunnug andlit! Og æðislegt að komast í siðmenninguna eftir alltof langan tíma í krummaskuðinu Hanstholm. Svo var náttúrulega keypt jólagjafir – notað tækifærið! Fjöldinn allur af stórum og flottum verslunum í Álaborg, verð að kíkja þangað aftur og spóka mig betur um, fékk bara smá smakk í þetta skiptið.

Svo var nú hún Sigrún amma mín að fá sér Fésbók í dag! Það mun kallast tíðindi!! :-D Það vakti vitanlega mikla lukku meðal allra, og vonandi hennar líka :-)

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.