Júlí & ágúst
Héðan frá Baunaveldi er allt nokkuð gott að frétta.
Síðan ég byrjaði aftur að vinna í Hesselholt í maí hefur bara yfirleitt verið nóg að gera, allavegana fyrir mig, en greyið Óskar bróðir hefur ekki fengið neina vinnu síðustu þrjár vikur sirka, fyrr en bara núna loksins í síðustu viku – ég vona að það haldi áfram, þ.e. að hann fái vinnu því hann er fluttur í eigin íbúð, litla stúdíó hér í sama hverfi og ég og Sigrún systir og þó hún kosti ekki mikið, þá þarf samt sem áður að borga hana – og hann fékk 0 KR á launaseðlinum sínum síðast, en hér fáum við borgað á 2ja vikna fresti. Launin eru fín hér á íslenskan standard – um 11.000 DKK á mánuði eftir skatt og fólk gæti hugsað “En þá er þetta bara eins og á Íslandi í fiski þar, áður en krónan féll” en það er ekki rétt, því hér er mikið ódýrara að lifa – sérstaklega hér í Hanstholm. Hér borga ég t.a.m. 3.000 DKK á mánuði fyrir íbúðina sem ég er í sem er um 60 fm en á Hellu var leigan á svoleiðis íbúð í kringum 70.000 kr síðast þegar ég vissi – gæti hafa hækkað. Svo eru föt hér ódýr og matur sömuleiðis, ekki vandamál að elda ofan í sig fyrir 10-15 DKK á dag.
En þetta eru ekki allt gull og grænir skógar. Hér er allt það sem allir þurfa á að halda ódýrt eða ókeypis – húsnæði, matur, föt, læknisþjónusta, nám, en svo eru aðrir hlutir sem eru mjög dýrir hér. Það er t.d. ekki fyrir hvern sem er að eiga bíl, tryggingar eru óendanlega dýrar, og bensínlítrinn er í kringum 10 DKK, og meira að segja eldgamlar ryðdruslur frá ‘88 kosta töluverða peninga – bílar sem fólk á Íslandi myndi helst gefa frá sér bara til að losna við að borga tryggingar af þeim og plássið sem þeir taka. Einnig er rafmagn og hiti töluvert dýrari hér en á Íslandi, þó ég hafði búist við verra. Ég borga um 650 DKK mánaðarlega fyrir hita og 1.000 DKK þriggja mánalega fyrir rafmagn. Internet er ekki svo dýrt – ég borga 250 DKK á mánuði fyrir betri tengingu en ég hef nokkru sinni haft á Íslandi, 10mb/sek.
Það sem er svo VIRKILEGA ósanngjarnt hér í landi eru verkalýðsfélagsgjöldin og atvinnuleysistryggingarnar, ásamt danska “útvarpsgjaldinu” sem eru 2 x 1.110 DKK á ári Takk Fyrir, Góðan Dag!!! Algjör glæpur, sérstaklega þar sem ég er þegar að borga fyrir SKYLDUSJÓNVARP með íbúðinni minni, sem er að vísu kapall og er inni í þessum 3.000 DKK sem ég borga í leigu – hefði frekar viljað borga þetta útvarpsgjald mánaðarlega með leigunni en að fá tvo risareikninga. En þetta er sko sannarlega land risareikninganna.
En aftur að verkalýðsfélaginu og atvinnuleysisbótum – þá er það ekki nein 1% sem maður borgar í félagið hér eins og heima, heldur tæpar 850 DKK á mánuði og þú þarft að borga það í hverjum mánuði í heilt ár og takast að vinna 2.000 klst á þeim tíma til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum árið eftir – en fyrsta árið þitt þá skaltu bara gjöra svo vel og svitna, því þú færð ekki krónu ef þú missir vinnuna eða það kemur ekki fiskur, eins og í Óskars tilfelli, þó það sé hægt að fá einhverjar aumingjabætur frá kommúnunni ef maður hefur staðfest atvinnuleysi – það hafði ég í 2 mánuði og fékk 5.000 dkk út úr krafsinu – 2.500 DKK átti ég að lifa á, á mánuði. Sem betur fer á ég VISA kort, svo þetta reddaðist. Núna er ég bara að klára að borga þessa skuld upp, sem gengur ágætlega, við hlið þess að borga mitt mánaðarlega uppihald, safna peningum fyrir Suður Ameríkureisuna í janúar og hjálpa báðum stelpunum mínum, í Kólumbíu og Guatemala.
En já, fyrir þá sem ekki vissu það, þá er ég að fara til Suður Ameríku, með Kristínu vinkonu. Erum búnar að kaupa flugið og alles. Fljúgum út til Ekvador þar sem við lendum seinnipartinn 5. janúar næstkomandi, ferðumst svo um Ekvador, Perú, Chile og Argentínu, þaðan sem við fljúgum svo til Mexíkó til að stoppa í viku og svo áfram til Evrópu, 12. mars. Mikil gleði og hlakka mikið til!
Svo er ég loksins búin að sparka í rassinn á sjálfri mér – farin að taka vítamín frá GNC og er alveg rosa magnaður pakki, ein tafla á dag sem er svo sprengfull af vítamínum og steinefnum að ég gæti tæknilega séð lifað á vatni ef ég vildi það – sem ég mun auðvitað ekki gera, auk þess að taka engiferstöflur til að reyna að losna við allan þennan vatnsmassa í fituvefnum, ginko biloba sem á að hressa upp á heilabúið þó ég hafi takmarkaða trú á því, og svo krómtöflur til að jafna út blóðsykurinn sem hefur hingað til verið algjör rússíbanaferð hjá mér. Þetta og svo byrjuð að fara í ræktina, loksins! Tók mig alltof langan tíma að hífa mig í þetta, en mér hafði bara ekki liðið mjög vel upp á síðkastið, alveg frá því ég kom heim til Íslands frá Argentínu á síðasta ári, reyndi of mikið á taugarnar á mér allt það prósess, fyrir á meðan og á eftir. En er öll að braggast og sé fram á að árið 2010 verði mögulega besta ár lífs míns!
Ég er svo búin að vera að rembast við að koma “Nýja Bakpokanum” í gagnið – flytja síðuna yfir í stýrikerfisform – Content Management System – sem þýðir að ég get breytt og bætt við síðuna hvar sem ég er í heiminum á meðan ég kemst í net, í staðinn fyrir að áður þurfti ég að nota Dreamweaver forritið og FTP forrit, sem var ekki að finna á hverju strái, svo þetta er töluverð einföldun fyrir mig, ásamt því að ég hef verið að bæta inn nýjum liðum annað slagið. Það er þó enn langt verk fyrir höndum.
Af hundinum mínum, Nils, er það að frétta að hann varð 1 árs gamall 15. júlí síðatliðinn og nánast eins og klukka sem sló yfir miðnætti, þá er hann að breytast úr unglingshundi í karlhund – farinn að merkja og lyfta fæti, og brjóstkassinn farinn að stækka niður á við, svo fæturnir á honum virðast ekki jafn langir og áður. Hann er samt sami knúsuboltinn og áður, loksins farinn að halda svolítið í feldinn á sér – fór alveg rooosalega úr hárum í sumar og vor, svo hann er orðinn algjör bangsi og allir í Hanstholm elska hann og vilja knúsa hann þegar við erum úti að labba, sem er ekkert skrýtið þar sem sætari og geðbetri hund er erfitt að finna!
Hvað fleira… jú, veðrið hérna hefur verið alveg ömurlegt í allt sumar! Í þessum töluðu orðum, þá er hýfandi rok og rigning úti. Búið að vera nokkuð svipað síðustu mánuði en sumarið stakk af til Íslands, virðist vera… !
En jæja, segi þetta nóg í bili!
Hello! Please e-mail me your contacts. I have a question zachary@complective.ru” rel=”nofollow”>……
Thanks!…
PillSpot.org. Canadian Health&Care.No prescription online pharmacy.Special Internet Prices(up to 40% off average US price).PillSpot.org. Herbal-supplements@buy.online” rel=”nofollow”>.< /a …
Categories: Stomach.Antiviral.Mens Health.Antidepressants.Cholesterol.Womens Health.Blood Pressure/Heart.General Health.Anti-allergic/Asthma.Skin Care.Anxiety/Sleep Aid.Stop SmokingWeight Loss.Mental Health/Epilepsy.Antibiotics.Antidiabetic.Pain R…