Maí og Júní

Gengur eitthvað illa að blogga. Er svosem ekkert að frétta, þannig séð – engar ferðir, engar uppákomur, ekkert slíkt.

Í maí og júni hef ég bara verið að vinna.. byrjaði aftur í Hesselholt eftir 2ja mánaða atvinnuleysi þann 4. maí síðastliðinn og það er gott að vera farin að vinna aftur. Byrjaði um mánuði seinna að læra á vélar og það hefur bara gengið fáránlega vel! Skaut öllum nýliðum ref fyrir rass í hraða og vandvirkni, meira að segja líka nokkrum af þeim sem hafa verið þarna árum saman! :-)

Veðrið hefur verið ágætt – ég hefði nú eiginlega búist meira við dönsku hásumri en svona er þetta. Allavegan ekkert til að kvarta yfir, þar sem ég hef bara tvisvar þurft að labba í vinnuna í rigningu af 2 mánuðum, og það hafa verið 2-3 helgar með alveg 25°c hita, sem var voðalega nice – eins og í dag :-) Og á svona dögum, þar sem ég á heima í bæ við ströndina, þá fer maður á ströndina í labbitúr með hundinn, jafnvel leggjast í sólbað ef það er ekki of mikið rok og nægilegur hiti! Hér í Hanstholm er svo líka hægt að fara í hinar ýmsu göngur – norðurendi eina þjóðgarðs Danmörku, Thy National Park, er ekki nema 150 m frá húsinu mínu og þar getur maður gengið endalaust í suðurátt, hinar ýmsu gönguleiðir. Svo getur maður farið um skóginn hér í Hanstholm, sem er þakinn af rústum frá Seinni Heimstyrjöldinni – vakti MIKLA lukku hjá Skara brósa, sem kannaðist við fjöldan allan af byssum og sprengivörpum sem hann sá, úr tölvuleikjum og stríðsbókum. Nú, svo getur maður líka gengið hálftíma til austurs til bæjarins Ræhr þar sem er lítið stöðuvatn og í það eru seld veiðileyfi… skilst samt að það veiðist eitthvað lítið í því. Þá eru margir sem velja frekar að fara á höfnina og dorga, eða fara á Gula Rifið á stangveiðibát. Þeir sem eiga svo surfbretti og galla geta farið á strendurnar hér í kring, sem eru einhverjar þær bestu í Danmörku til að fara í surfing, og fyrir þá sem ekki eiga, þá er meira að segja surfskóli suður af bænum! Og svo er hægt að fara í 2klst – 3ja daga hestaferðir á íslenskum hestum frá tjaldsvæðinu hérna :-) Svo er líka hægt að kafa og fara í kajakferðir… svo mætti lengi telja! Verð og lýsingar á þessu öllu getið þið séð á www.hanstholm-camping.dk ef þið komið einhvern tíman :) Þeir eru með tjaldsvæði og lítil sumarhús.

Nils er svo orðinn algjör risi! Hann er að verða  1 árs gamall 15. júlí næstkomandi. Hann er farinn að bæta töluvert utan á sig, því hann var búinn að vera ansi horaður vegna orma sem hann var með, en nú er hann búinn að fá ormalyf svo hann er allur að braggast :-)   Ég kemst líka að því betur og betur á hverjum degi að ég eigi besta hund í heimi! Hann hlýðir mömmu sinni í einu og öllu, ekkert er heilagara en orð mömmu sinnar! Ég get skilið hann eftir einan og hann smakkar ekki á nokkrum sköpuðum hlut nema það sem ég hef áður leyft honum að smakka á (kaðallinn hans, beinið hans og bangsinn hans). Hann geltir hvorki né vælir, er aldrei með neitt vesen. Er algjör knúsubangsi og ELSKAR börn og er alveg einstaklega góður við þau!! Og hann veit sko alveg hvernig hann á að hegða sér í kringum mismunandi fólk… leikglaður í kringum börn, rólegur knúsubolti kringum fullorðna og skottið á milli lappanna ef hann sér skuggalegt fólk – alveg handvonlaus varðhundur þar á ferð, hehe! En samt alveg eins og ég vil hafa hann :-) Hann er algjört hjartagull!

En jæja! Nú er endurvinnsludagur hjá mér og er ég því að hugsa um að fara með dagblöð og auglýsingabæklinga síðustu mánaða út í center! Yfir og út :-)

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.