Fréttir frá Danmörku

Jæja þá eru liðnar rétt rúmar 2 vikur síðan ég flutti til Danmörku.

Ég lagði af stað 2. febrúar með ekki svo góðri byrjun – að borga 12.000 kr í yfirvigt með Iceland Express :-/  Það er ekkert grín að vera að fljúga í kreppunni, auðvitað reynt að tína af manni eins mikinn pening og mögulegt er.

Ég lenti svo í Kaupmannahöfn nokkrum tímum seinna, þar sem ég gisti hjá Kristian vini mínum, homma sem býr í Österbro, sem ég kynntist á ferðalagi um Bólivíu snemma á síðasta ári. Hann var alveg NÝ fluttur inn í íbúðina sína, hafði í raun ekki einu sinni vígt hana enn, heldur gisti hjá foreldrum sínum á meðan hann var að standsetja íbúðina sína. Ég var búin að fá að krefjast þess að fá að hjálpa honum að mála, en þegar ég loks kom var hann nú búinn að því en hafði stokkið í IKEA til að kaupa sér innbú. Ég fékk því að hjálpa honum að púsla saman húsgögnunum í staðinn :-)

Kristian bauð mér að geyma eitthvað af dótinu mínu í geymslu hjá sér, sem ég má svo sækja hvenær sem mér sýnist, svo ég þyrfti ekki að borga yfirvigt aftur, því ég átti aftur að fljúga, þetta skiptið með Cimber air til Álaborgar. Flugið var frábært og eins ódýr og flugmiðinn var (50% ódýrari en lestarmiðinn), þá fékk maður meira að segja ókeypis appelsínusafa og samloku. Eitthvað sem má kallast merkilegt af íslenskum standard þar sem gæði íslensku flugfélagana eru orðin NÚLL. Nei, -25.

Ég fékk samt fljótlega að komast að því að það hefði kannski eftir allt verið gáfulegra að taka lest, þó hún tæki lengri tíma, þar sem ég hefði getað tekið allan farangurinn minn með mér, og ekki þurfti að þvælast neinar vegalengdir með hann, því Kristian býr rétt hjá lestarstöðinni í Köben, svo eru bara ein skipti á leiðinni til Hanstholm, úr beinu lestinni til Thisted, yfir í strætó til Hanstholm en það er á nákvæmlega sama stað, rúturnar fara bara af bílaplaninu á lestarstöðinni.

En í staðinn þurfti ég að, skilja 50% af farangrinum eftir hjá Kristian, fara með lest frá Österbro í Köben til Kastrup, svo labba alveg 1 km yfir í innanlandsflugið (fór engin rúta milli utanlands og innanlandsflugvallanna akkúrat á þessum tíma svo ég vissi til ), RÉTT komst í vélina á réttum tíma, lenda í Álaborg, taka strætó inn í miðbæ, missa af stoppinu, taka annan strætó til baka, fara inn á rútustöð Álaborgar og bíða þar í næstum 3 klst, taka rútu til Thisted og svo hoppa upp í fyrrnefndan strætó til Hanstholm. Svo tók Jensi á móti mér í Hanstholm Centrinu (lítil verslunarmiðstöð) þar sem við löbbuðum heim :-)

Ég var komin til Hanstholm 4. febrúar, skrapp til Thisted til að sækja um danska kennitölu og flytja lögheimili mitt 5. febrúar og byrjaði svo að vinna föstudaginn 6. febrúar.

Vinnan hefur svo bara gengið vel. Ég er í pökkunardeildinni, og fyrir þá sem ekki vita, þá er það í fiski hér í Hanstholm, í fyrirtæki sem heitir Hesselholt. Er þar með tæpar 109 DKK á tímann (2.100 ISK), og eftir því sem ég skil rétt, í kringum 11.000 DKK (212.000 ISK) útborgað. Venjulega er fólk hér að borga um 42% (eða 43%) í skatt en ég vildi ekki láta skrá mig í þjóðkirkjuna, svo af mér er tekinn 39% skattur ;-)

Núna er ég s.s. komin með:

  • Vinnu
  • Danska kennitölu
  • Skattkort
  • Danskan bankareikning
  • Debetkort
  • Danskan GSM: 5225 3980
  • … og núna nýjustu fréttir: ÍBÚÐ!!!!

Ég var í dag að fá grænt ljós á raðhúsið sem ég var að sækja um, en það er 59 fm, með stofu, eldhúsi, baði og svefnherbergi og ógó næs verönd! Kostar tæpar 3.000 DKK á mánuði og má þess vegna flytja inn á morgun! En ég þarf að redda hústryggingarláninu, en Hreppurinn lánar manni fyrir því, þarf bara að tala við þá þar (eða reyndar Sigrún systir :-p )

Svo fékk ég að prófa að keyra VESPU í fyrsta skiptið um daginn!!!! Ólafur frændi Hönnu kom alveg sérstaklega með vespuna sína til að kenna mér, Sigrún og þau voru búin að plana þetta LÖNGU áður en ég kom, svo þó mér lytist EKKERT á hugmyndina, alveg skíthrædd við svona mótorhjóladæmi, þá varð ég að gefa eftir – og það var bara hrikalega mikið fjör!! Og ég er víst besti nemandinn sem hann hefur fengið so far ;-)

Svo hef ég líka síðustu vikuna verið að BERJAST við það að ljúka TEFL (Teaching English as a Foreign Language) námskeiðinu sem ég sótti um í ágúst en hefur fengið að sitja á hakanum vegna annríkis á Íslandi. Lokaverkefnið var alveg SKÍTERFITT og ætlaði mér ALDREI að takast að komast í gegnum það, svo þegar það tókst, var það ekki rétt, og þurfti að reyna aftur, var aftur vitlaust, og byrjaði ALVEG upp á nýtt og þá gaf kennarinn mér EINN annan séns til að klára þetta því það vantaði svo lítið upp á – og viti menn ;-) Nú er ég komin með leyfi til að kenna við enskuskóla út um allan heim! ;-)

Svo tókst mér loksins að hringja í Yeimi, stelpuna mína úti í Guatemala og í mömmu hennar. Þar var alveg heilmikið að frétta. Hún er farin að stunda tölvunám, svo hún geti haft samband við mig í gegnum netið – mátti velja milli matreiðslu, baksturs, leiklistar eða tölvunáms og hún valdi að fá að læra á tölvur. Sem betur fer. Og svo var mamma hennar að segja mér að Yeimi er varla búin að gera annað en að læra upp á síðkastið, því hún þarf að taka 3 bekki á einu ári, því hún er að verða 15 ára á þessu ári. Og mér til mikillar hamingju, þá er hún að klára grunnskólann, er núna að taka 4., 5. og 6. bekk (eru bara 6 bekkir í grunnskóla þarna) á þessu ári, við skólann Jóvenes de la Victoria, og svo fer hún í framhaldsskóla á næsta ári!! Hugsið ykkur – áður en ég fór að styrkja hana var hún 12 ára og hafði aldrei gengið í skóla, kunni hvorki að lesa né skrifa… nú er hún að vara að útskrifast! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er stolt, og gefur manni svo sannarlega eitthvað til að lifa fyrir!!! Og hana langaði alltaf að fara í læknisfræði (þegar hún var 12 ára) en núna er hún farin að vera hrædd um að hún þoli ekki að sjá blóð og vill frekar læra ferðamálafræði eins og guðmóðir hennar (ég) :-D En ég vildi fyrst og fremst að hún leggi áherslu á að læra vel og vandlega ensku, því það er eitthvað sem á eftir að skipta hana rosalega miklu máli þegar kemur að vinnumöguleikum þarna úti. Ég er búin að vera að skoða möguleikan á að senda hana í enskuskóla núna á næsta ári þegar það fer að róast aðeins hjá henni, þegar hún þarf ekki að læra svona rosalega mikið. Ég ætla svo að fara á fullt að athuga möguleikan á því hvort hún geti komið hingað (til DK) í nám og/eða vinnu þegar hún er orðin lögaldra (eftir 3 ár).

En jæja HJÚKK. Það var víst kominn tími á þetta blogg.

Hérna er símanúmerið mitt og nýja heimilisfangið mitt:

Þrúður Helgadóttir,
Bygmarken 27,
7730 Hanstholm,
DANMARK.
GSM: +45 5225 3980

Læt ykkur vita þegar ég verð komin með heimasíma, og svo er von á að ég verði meira á netinu þegar ég kem tölvunni minni loksins í netsamband :-p

Until next time!

3 Responses to “Fréttir frá Danmörku”

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.