Blogg

Áframhaldandi Danmörk
Ég hef verið að þvælast um hin ýmsu blogg síðustu daga, að reyna að drepa tímann meðan ég er heimsend frá vinnunni, sem fékk mig til að hugsa til þess að ég ætti nú einhvers staðar blogg, já. Það svosem les enginn þetta blessaða blogg, það gerist allt orðið á Facebook þessa dagana, sem mér finnst mjög fínt. Allir á einum stað og óþarfi að vera að standa í eilífu veseni með ýmis forrit og síður til þess að koma skilaboðum til skila. Þetta blogg held ég verði bara minn staður, þar sem ég segi það sem mig langar til, hversu drepleiðinlegar færslurnar eru, geri hvort sem er ekki ráð fyrir að nokkur maður lesi, eins og ég sagði áður. Bara ágætt að skrá hugsanir sínar einhvers staðar niður.

Ég er allavegana ennþá í Danmörku, og það virðist ekki ætla að vera neitt lát á dvöl minni hérna. Áætlunin var að flytja aftur til Íslands núna í júní, en það datt eiginlega allt upp fyrir af ýmsum ástæðum:

Ég var með örugga vinnu hjá M&P í sumar, frá júní, auk nokkurra verkefna við leiðsögn við komu spænskra skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. En áframhaldandi vinna eftir sumarið var óörugg.

Golden retrieverinn minn, Nils, má ekki koma til Íslands fyrr en 3. ágúst í allra fyrsta lagi, svo hann vantaði pössun frá 2. júní til 3. ágúst sem mér hefur ekki tekist að útvega þar sem það eru allir á flakki yfir sumarið, rétt eins og ég, eða með teppi í húsinu, eða aðra hunda og geta ekki tekið fleiri á sig, eða í húsnæði þar sem ekki mega vera hundar. Svo ég verð bara að vera með hann sjálf og fer því ekki fet.

Auk þess, þá er ég með örugga vinnu hér í Danmörku, ólíkt því sem áður var, þar sem ég var ekki að fá nema kannski 40 klst vinnu yfir allan mánuðinn, sem var einnig það eina sem ég fékk útborgað. Nú hefur verið svo mikil vinna að fólk er alveg búið á því. Það hefur komið fyrir að við höfum unnið frá 07:00 til 18:00, sem er mjög óvenjulegt. Ég ætla að gera ráð fyrir að þetta haldi svona áfram í sumar… vonandi!

Svo hef ég ef til vill ekki gefið Danmörku mikinn séns. Hef kvartað undir að eiga ekki vini, en ég hef kannski ekki gefið fólki nógu mikinn möguleika á að kynnast mér, og hefur þessi staða verið að batna upp á síðkastið.

Ég hafði líka átt erfitt með að koma dönsku fyrir í hausnum á mér, en eftir tæpa vikudvöl hjá Kichwa indíánum í Amason regnskóginum og læra svolítið af þeirra sérkennilega tungumáli, þá var eins og það opnaði fyrir lokaðar og læstar dyr í tungumálahluta heilabúsins og ég kom aftur til Danmörku eftir 2ja og hálfs mánaðar dvöl í Suður Ameríku og gat allt í einu tjáð mig almennilega á dönsku og skilið hana þegar talað var við mig, þó svo ég hafði ekki heyrt stakt orð í tungumálinu allan þann tíma sem ég var úti.

En þó svo margt sé bjartara nú en áður var, þá efast ég samt um að ég verði hér til lengdar. Ég er búin að vera að berjast við sjálfa mig um það hvar mig langar að búa, hvað mig langar að gera. Ég sé ekki mikla framtíð hér fyrir mér í Danmörku, þar sem ég er mest fyrir að vinna í ferðaþjónustu, en til þess að vinna í ferðaþjónustu hér er það algjört möst að kunna þýsku… sem ég lærði í skóla, en lærði aldrei því mér finnst það hrikalega leiðinlegt og erfitt mál. Og það er ekki eitthvað sem maður lærir bara sísvona, eins og hendi væri veifað. Hef það margt á minni könnu sem ég á eftir að læra af sjálfsdáðum, að ég er ekki alveg tilbúin að bæta þýsku líka á þann lista. Ég er t.d. alltaf á leiðinni að læra japönsku. Ég þvælist með japönskubækurnar mínar og geisladiska og kasettur út um allan heim, alltaf á leiðinni að glugga í þetta, en ég finn mér aldrei sálarró til þess að setjast niður og glugga í bók. Ég hef ekki lesið heila bók síðan ég var í 10 daga Amason siglingunni frá Trinidad í Bólivíu til Manaus við Amason ánna í Brasilíu í október 2007. Hana nú!

Ég hef samt lært eina aðferð sem kennir mér að slaka á, en það er eitthvað sem ég hef alltaf átt alveg óendanlega erfitt með… það er alltaf einhver óværð í mér, mér finnst ég alltaf vera að gleyma einhverju, alltaf þurfa að gera eitthvað. En til að losa um þessa endalausu streytu þá hef ég komist að því að það er alveg brilliant að fara í ljós í Thisted. Þar er sjálfvirk ljósastofa við eitt torgið á aðalgötunni, maður skellir 20 DKK klinki í vél, lokar sig svo inni í klefa, en þar eru alveg ótrúlega flottir ljósabekkir sem eru svona level-skiptir, hærra fyrir fótum og lægra fyrir maga og andlit, svo maður brenni ekki á hæðstu hlutum líkamans, heldur fái jafnan lit yfir allan líkamann. Svo ofan á það, þá er líka alveg yndislegur volgur og töluvert sterkur blástur inni í ljósabekknum. Hitinn og vindurinn hefur eitthvað alveg einstakt effect á mann, svo maður fer þaðan út alveg ótrúlega afslappaður! Æðislegt.

En já… Þegar ég var í Suður Ameríku, nánar tiltekið bænum mínum Villa Unión í Argentínu, þá hitti ég góðan vin frá því ég bjó þar. Í raun hitti ég alveg endalaust marga gamla og góða vini þar, nokkurn veginn alla sem ég þekkti, en þessum vin hafði ég saknað meira en flestra annara því hann hafði verið fastagestur heima hjá mér, höfðum eytt miklum tíma saman og hann alltaf passað vel upp á mig. Hann hafði verið hrifinn af mér frá degi eitt, en ég hafði þá verið á föstu með vini hans. Núna var ég á lausu og þá má segja að í þetta skiptið, sem var í febrúar á þessu ári, hafi hitnað undir gömlum glóðum. Alveg frábær strákur og ákváðum við að halda sambandi eftir að ég færi og svo er stefnan að ég fari til Argentínu núna í nóvember, þó það geti vel verið að það geti orðið strax í september út af breytingunum með vinnuna á Íslandi. En svo var það síðan annað, en ég kynntist á síðasta ári strák hér í Danmörku, danskur strákur, en þá var hann á föstu. Sem hann var ekki lengur eftir að ég kom heim og okkur hefur samið ágætlega og kynnst mikið betur núna eftir að ég kom heim. Hef mikið velt því fyrir mér hvað gæti verið þar, en þessi strákur er hinn mesti herramaður, eitthvað sem ég kann að meta. Það er fátt sem mér leiðist meira en hrokafullir eiginhagsmunaseggir eins og margir sem ég hef kynnst yfir æfina. Svo ég er á báðum áttum hvort ég ætti að gefa Danmörku raunverulegan séns, eða ætti ég að fara og eltast við drauma. Það er erfitt val, þar sem ég er að eðlisfari mikil draumóramanneskja og er lítið fyrir að láta einhverjar hraðhindranir stoppa mig við að gera það sem mig dreymir um. Allt snýst bara um ákvarðanir og svo er ekkert sem stoppar mann nema maður sjálfur!

En já, að öðru. Ég bý núna í Ræhr, pínulitlu krummaskuði rétt fyrir utan Hanstholm – eins og Hanstholm væri ekki nógu mikið krummaskuð! En þar bý ég hjá Skara bróðir í litlu stúdíóíbúðinni hans ásamt Nils mínum, alltaf alveg að kafna úr reykingastækju þar sem Óskar reykir þar og ekki beint stórt pláss! Það er það sem mér líður aðalega illa með að vera að búa lengur hjá honum en ekki á Íslandi… því það tekur því ekki að vera að leigja eigin íbúð í 2-3 mánuði, þegar ég á ekkert til að hafa inni í henni. Svo þetta er bara svona… fleiri kaldar, reykfylltar nætur sofandi á loftdýnu með þunnt flísteppi ofan á mér. Fleiri mánuðir fyrir Nils greyið í þessari litlu kompu og ég vona bara og vona að hundgreyið fái ekki krabbamein af því að þurfa að anda að sér reykjarstækjunni í 4-5 mánuði í heildina… En þá þarf ég þó ekki að vera að punga út fyrir tryggingu fyrir íbúð sem ég myndi bara nota í 2-3 mánuði, og geta lent í því að missa alla trygginguna eins og í síðustu íbúð, en leigufélögin hérna eru alveg hræðileg með þetta, að rukka leigjendur fáránlegar upphæðir við útflutning, bara til þess að geta haldið íbúðunum sínum við með málningu, lakki og öðru eins. Nú þegar er ég komin með 250.000 kr reikning frá síðasta krimmaleigufélagi, og ég vil helst ekki fá annan. Auk þess þá er leigan hjá Óskari lág, ég borga helminginn á móti honum, sem er þá ekki nema 1.000 dkk á mann með hita og rafmagni. Sparnaðurinn fer bara í að borga skuldina vegna tryggingunnar til leigufélagsins, sem hafði verið tekin að láni hjá kommúnunni. Og svo vonandi að lokum upp í flugmiða og uppihald fyrir mig í Suður Ameríku í 2-3 mánuði í lok árs, þar sem ég ætla að hitta strákinn þar, taka einnig próf í háskólanum mínum og reyna að vera í Chile fyrir þjóðhátíðina, en það er víst 200 ára þjóðveldisafmæli Chile í ár – ásamt reyndar fjölda annara Suðuramerískra landa, því það var í tísku að verða sjálfstætt land fyrir 200 árum síðan og slíta sambandi við Spán… Argentína og Mexíkó eiga t.d. líka 200 ára fullveldisafmæli í ár!

En jæja… blah!

Vetur konungur mættur
Látum okkur nú sjá. Ég hef ekki bloggað í fleiri aldir. Þetta er svona ef enginn kommentar hjá manni, þá gerir maður ráð fyrir að hér komi ekki við einn einasti lifandi maður. En þó maður haldi þetta kannski fyrir sjálfan sig, til þess að halda utan um atburði líðandi stundar og svo framvegis… þá skrifar maður nú bara samt.

Það er farið að styttast töluvert í Suður Ameríkuferð og í dag eru aðeins 15 vinnudagar eftir, ef við verðum ekki heimsend. Það er búið að vera mjög mikið um heimsendingar síðustu mánuði og þar sem ég er ekki búin að vinna hér í eitt heilt ár og borga morðfjár í verkalýðsfélag alla tíman fæ ég engar bætur ef ég missi úr vinnu, það eina sem ég fæ er tekjutrygging frá kommúnunni, sem eru um 9500 dkk fyrir skatt – sem er ekki neitt eftir skatt!

Það er búið að vera mikill bardagi að reyna að safna pening fyrir ferðina til Suður Ameríku, og í raun búin að sætta mig við þá hugmynd að ég fari ekki með neinn uppsafnaðan pening út – bara reyni að lækka skuldirnar mínar eftir bestu getu áður en ég fer út. Gengur misjafnlega í hallærinu hér. Og ekkert gengur heldur að fá pössun fyrir Nils, hundinn minn. Svo það má segja að maður sé frekar stressaður og lifi í óvissunni þessa dagana.

Að öðru – fór til Álaborgar á sunnudaginn, það var fjör! Skrapp bara stutt þar sem það voru ókeypis rútuferðir um allt Norður Jótland of var lent í Álaborg um 11:30, tók svo rútuna heim tæplega 17:00. Tíminn var vel nýttur! Tvær ferðir á hins sárt saknaða Subway, þar sem bræðingur í honey oat, með southwest sósu og majó var íslenskt súkkulaði!! Hvílík hamingja! Nóa Pipp… Mmmmm! Svo var kíkt í “Stórcentrið” þar sem ein stærsta verslun sem ég hef komið í – BILKA. Ég vissi ekki hvar ég ætti að byrja! Er allt ódýrt, og svo risastórt svæði að maður gæti afar auðveldlega eytt þar 2-3 klst að þræða í gegnum þetta allt. Svo hitti ég líka Kr. Helga sem býr hér í Álaborg – gott að hitta kunnug andlit! Og æðislegt að komast í siðmenninguna eftir alltof langan tíma í krummaskuðinu Hanstholm. Svo var náttúrulega keypt jólagjafir – notað tækifærið! Fjöldinn allur af stórum og flottum verslunum í Álaborg, verð að kíkja þangað aftur og spóka mig betur um, fékk bara smá smakk í þetta skiptið.

Svo var nú hún Sigrún amma mín að fá sér Fésbók í dag! Það mun kallast tíðindi!!   Það vakti vitanlega mikla lukku meðal allra, og vonandi hennar líka

Júlí & ágúst
Héðan frá Baunaveldi er allt nokkuð gott að frétta.

Síðan ég byrjaði aftur að vinna í Hesselholt í maí hefur bara yfirleitt verið nóg að gera, allavegana fyrir mig, en greyið Óskar bróðir hefur ekki fengið neina vinnu síðustu þrjár vikur sirka, fyrr en bara núna loksins í síðustu viku – ég vona að það haldi áfram, þ.e. að hann fái vinnu því hann er fluttur í eigin íbúð, litla stúdíó hér í sama hverfi og ég og Sigrún systir og þó hún kosti ekki mikið, þá þarf samt sem áður að borga hana – og hann fékk 0 KR á launaseðlinum sínum síðast, en hér fáum við borgað á 2ja vikna fresti. Launin eru fín hér á íslenskan standard – um 11.000 DKK á mánuði eftir skatt og fólk gæti hugsað “En þá er þetta bara eins og á Íslandi í fiski þar, áður en krónan féll” en það er ekki rétt, því hér er mikið ódýrara að lifa – sérstaklega hér í Hanstholm. Hér borga ég t.a.m. 3.000 DKK á mánuði fyrir íbúðina sem ég er í sem er um 60 fm en á Hellu var leigan á svoleiðis íbúð í kringum 70.000 kr síðast þegar ég vissi – gæti hafa hækkað. Svo eru föt hér ódýr og matur sömuleiðis, ekki vandamál að elda ofan í sig fyrir 10-15 DKK á dag.

En þetta eru ekki allt gull og grænir skógar. Hér er allt það sem allir þurfa á að halda ódýrt eða ókeypis – húsnæði, matur, föt, læknisþjónusta, nám, en svo eru aðrir hlutir sem eru mjög dýrir hér. Það er t.d. ekki fyrir hvern sem er að eiga bíl, tryggingar eru óendanlega dýrar, og bensínlítrinn er í kringum 10 DKK, og meira að segja eldgamlar ryðdruslur frá ‘88 kosta töluverða peninga – bílar sem fólk á Íslandi myndi helst gefa frá sér bara til að losna við að borga tryggingar af þeim og plássið sem þeir taka. Einnig er rafmagn og hiti töluvert dýrari hér en á Íslandi, þó ég hafði búist við verra. Ég borga um 650 DKK mánaðarlega fyrir hita og 1.000 DKK þriggja mánalega fyrir rafmagn. Internet er ekki svo dýrt – ég borga 250 DKK á mánuði fyrir betri tengingu en ég hef nokkru sinni haft á Íslandi, 10mb/sek.

Það sem er svo VIRKILEGA ósanngjarnt hér í landi eru verkalýðsfélagsgjöldin og atvinnuleysistryggingarnar, ásamt danska “útvarpsgjaldinu” sem eru 2 x 1.110 DKK á ári Takk Fyrir, Góðan Dag!!! Algjör glæpur, sérstaklega þar sem ég er þegar að borga fyrir SKYLDUSJÓNVARP með íbúðinni minni, sem er að vísu kapall og er inni í þessum 3.000 DKK sem ég borga í leigu – hefði frekar viljað borga þetta útvarpsgjald mánaðarlega með leigunni en að fá tvo risareikninga. En þetta er sko sannarlega land risareikninganna.

En aftur að verkalýðsfélaginu og atvinnuleysisbótum – þá er það ekki nein 1% sem maður borgar í félagið hér eins og heima, heldur tæpar 850 DKK á mánuði og þú þarft að borga það í hverjum mánuði í heilt ár og takast að vinna 2.000 klst á þeim tíma til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum árið eftir – en fyrsta árið þitt þá skaltu bara gjöra svo vel og svitna, því þú færð ekki krónu ef þú missir vinnuna eða það kemur ekki fiskur, eins og í Óskars tilfelli, þó það sé hægt að fá einhverjar aumingjabætur frá kommúnunni ef maður hefur staðfest atvinnuleysi – það hafði ég í 2 mánuði og fékk 5.000 dkk út úr krafsinu – 2.500 DKK átti ég að lifa á, á mánuði. Sem betur fer á ég VISA kort, svo þetta reddaðist. Núna er ég bara að klára að borga þessa skuld upp, sem gengur ágætlega, við hlið þess að borga mitt mánaðarlega uppihald, safna peningum fyrir Suður Ameríkureisuna í janúar og hjálpa báðum stelpunum mínum, í Kólumbíu og Guatemala.

En já, fyrir þá sem ekki vissu það, þá er ég að fara til Suður Ameríku, með Kristínu vinkonu. Erum búnar að kaupa flugið og alles. Fljúgum út til Ekvador þar sem við lendum seinnipartinn 5. janúar næstkomandi, ferðumst svo um Ekvador, Perú, Chile og Argentínu, þaðan sem við fljúgum svo til Mexíkó til að stoppa í viku og svo áfram til Evrópu, 12. mars. Mikil gleði og hlakka mikið til!

Svo er ég loksins búin að sparka í rassinn á sjálfri mér – farin að taka vítamín frá GNC og er alveg rosa magnaður pakki, ein tafla á dag sem er svo sprengfull af vítamínum og steinefnum að ég gæti tæknilega séð lifað á vatni ef ég vildi það – sem ég mun auðvitað ekki gera, auk þess að taka engiferstöflur til að reyna að losna við allan þennan vatnsmassa í fituvefnum, ginko biloba sem á að hressa upp á heilabúið þó ég hafi takmarkaða trú á því, og svo krómtöflur til að jafna út blóðsykurinn sem hefur hingað til verið algjör rússíbanaferð hjá mér. Þetta og svo byrjuð að fara í ræktina, loksins! Tók mig alltof langan tíma að hífa mig í þetta, en mér hafði bara ekki liðið mjög vel upp á síðkastið, alveg frá því ég kom heim til Íslands frá Argentínu á síðasta ári, reyndi of mikið á taugarnar á mér allt það prósess, fyrir á meðan og á eftir. En er öll að braggast og sé fram á að árið 2010 verði mögulega besta ár lífs míns!

Ég er svo búin að vera að rembast við að koma “Nýja Bakpokanum” í gagnið – flytja síðuna yfir í stýrikerfisform – Content Management System – sem þýðir að ég get breytt og bætt við síðuna hvar sem ég er í heiminum á meðan ég kemst í net, í staðinn fyrir að áður þurfti ég að nota Dreamweaver forritið og FTP forrit, sem var ekki að finna á hverju strái, svo þetta er töluverð einföldun fyrir mig, ásamt því að ég hef verið að bæta inn nýjum liðum annað slagið. Það er þó enn langt verk fyrir höndum.

Af hundinum mínum, Nils, er það að frétta að hann varð 1 árs gamall 15. júlí síðatliðinn og nánast eins og klukka sem sló yfir miðnætti, þá er hann að breytast úr unglingshundi í karlhund – farinn að merkja og lyfta fæti, og brjóstkassinn farinn að stækka niður á við, svo fæturnir á honum virðast ekki jafn langir og áður. Hann er samt sami knúsuboltinn og áður, loksins farinn að halda svolítið í feldinn á sér – fór alveg rooosalega úr hárum í sumar og vor, svo hann er orðinn algjör bangsi og allir í Hanstholm elska hann og vilja knúsa hann þegar við erum úti að labba, sem er ekkert skrýtið þar sem sætari og geðbetri hund er erfitt að finna!

Hvað fleira… jú, veðrið hérna hefur verið alveg ömurlegt í allt sumar! Í þessum töluðu orðum, þá er hýfandi rok og rigning úti. Búið að vera nokkuð svipað síðustu mánuði en sumarið stakk af til Íslands, virðist vera… !

En jæja, segi þetta nóg í bili!

Maí og Júní
Gengur eitthvað illa að blogga. Er svosem ekkert að frétta, þannig séð – engar ferðir, engar uppákomur, ekkert slíkt.

Í maí og júni hef ég bara verið að vinna.. byrjaði aftur í Hesselholt eftir 2ja mánaða atvinnuleysi þann 4. maí síðastliðinn og það er gott að vera farin að vinna aftur. Byrjaði um mánuði seinna að læra á vélar og það hefur bara gengið fáránlega vel! Skaut öllum nýliðum ref fyrir rass í hraða og vandvirkni, meira að segja líka nokkrum af þeim sem hafa verið þarna árum saman!

Veðrið hefur verið ágætt – ég hefði nú eiginlega búist meira við dönsku hásumri en svona er þetta. Allavegan ekkert til að kvarta yfir, þar sem ég hef bara tvisvar þurft að labba í vinnuna í rigningu af 2 mánuðum, og það hafa verið 2-3 helgar með alveg 25°c hita, sem var voðalega nice – eins og í dag   Og á svona dögum, þar sem ég á heima í bæ við ströndina, þá fer maður á ströndina í labbitúr með hundinn, jafnvel leggjast í sólbað ef það er ekki of mikið rok og nægilegur hiti! Hér í Hanstholm er svo líka hægt að fara í hinar ýmsu göngur – norðurendi eina þjóðgarðs Danmörku, Thy National Park, er ekki nema 150 m frá húsinu mínu og þar getur maður gengið endalaust í suðurátt, hinar ýmsu gönguleiðir. Svo getur maður farið um skóginn hér í Hanstholm, sem er þakinn af rústum frá Seinni Heimstyrjöldinni – vakti MIKLA lukku hjá Skara brósa, sem kannaðist við fjöldan allan af byssum og sprengivörpum sem hann sá, úr tölvuleikjum og stríðsbókum. Nú, svo getur maður líka gengið hálftíma til austurs til bæjarins Ræhr þar sem er lítið stöðuvatn og í það eru seld veiðileyfi… skilst samt að það veiðist eitthvað lítið í því. Þá eru margir sem velja frekar að fara á höfnina og dorga, eða fara á Gula Rifið á stangveiðibát. Þeir sem eiga svo surfbretti og galla geta farið á strendurnar hér í kring, sem eru einhverjar þær bestu í Danmörku til að fara í surfing, og fyrir þá sem ekki eiga, þá er meira að segja surfskóli suður af bænum! Og svo er hægt að fara í 2klst – 3ja daga hestaferðir á íslenskum hestum frá tjaldsvæðinu hérna   Svo er líka hægt að kafa og fara í kajakferðir… svo mætti lengi telja! Verð og lýsingar á þessu öllu getið þið séð á www.hanstholm-camping.dk ef þið komið einhvern tíman   Þeir eru með tjaldsvæði og lítil sumarhús.

Nils er svo orðinn algjör risi! Hann er að verða  1 árs gamall 15. júlí næstkomandi. Hann er farinn að bæta töluvert utan á sig, því hann var búinn að vera ansi horaður vegna orma sem hann var með, en nú er hann búinn að fá ormalyf svo hann er allur að braggast    Ég kemst líka að því betur og betur á hverjum degi að ég eigi besta hund í heimi! Hann hlýðir mömmu sinni í einu og öllu, ekkert er heilagara en orð mömmu sinnar! Ég get skilið hann eftir einan og hann smakkar ekki á nokkrum sköpuðum hlut nema það sem ég hef áður leyft honum að smakka á (kaðallinn hans, beinið hans og bangsinn hans). Hann geltir hvorki né vælir, er aldrei með neitt vesen. Er algjör knúsubangsi og ELSKAR börn og er alveg einstaklega góður við þau!! Og hann veit sko alveg hvernig hann á að hegða sér í kringum mismunandi fólk… leikglaður í kringum börn, rólegur knúsubolti kringum fullorðna og skottið á milli lappanna ef hann sér skuggalegt fólk – alveg handvonlaus varðhundur þar á ferð, hehe! En samt alveg eins og ég vil hafa hann   Hann er algjört hjartagull!

En jæja! Nú er endurvinnsludagur hjá mér og er ég því að hugsa um að fara með dagblöð og auglýsingabæklinga síðustu mánaða út í center! Yfir og út

Öldum seinna (eða réttara sagt 10 vikum seinna)
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á að kasta inn einni færslu eða svo. Það er samt svo mikið búið að vera að gerast að það myndi drepa mig (og ykkur) að skrifa það allt upp hér, svo ég hef þetta bara í stuttu máli:

Vinnan gekk vel í Hesselholt. Var loks færð af pakkiborðinu yfir í að skera fisk.

Keypti mér hund – Hreinræktaðan Golden Retriever af MJÖG flottum foreldrum. Hann er kallaður Nils en ræktunarnafn er Waterloo’s Best Representation. Hann er nú orðinn 9 mánaða og risastór.

Flutti inn í íbúðina mína, sem er virkilega nice, en mér líður samt eins og parinu í myndinni DUPLEX hvað varðar ömurlega nágrannann.

Hesselholt fór í greiðslustöðvun og ég missti því vinnuna. Eldra fólkið, þar á meðal Sigrún systir, fengu að vinna í þrotabúinu en ég var atvinnulaus og án bóta í 6 vikur.

Eftir langa bið og margar ferðir til Thisted fékk ég loksins 4.000 DKK út úr Launatryggingasjóð Danmörku fyrir dagana sem ég hafði unnið en ekki fengið borgaða + dagana þar til við fengum uppsagnarbréf. Voru fyrstu og einu peningarnir sem ég fékk fyrir þessar 6 vikur án vinnu og hafði því bara verið að lifa á VISA kortinu mínu hingað til.

Fékk loksins vinnu, hjá Hanstholm Fisk Export, en aðeins í 2 vikur því fyrirtækið reyndist falskara en það getur verið í orðum lýst. Farið algjörlega á bakvið verkafólk og mega kallast þrælabúðir. En fékk þó 2ja vikna laun fyrir vikið.

Aftur því orðin atvinnulaus

Fæ að mæta aftur í vinnu í Nýja Hesselholt mánudaginn 4. maí  kl. 07:00 !

Ég og Kristín erum búnar að ákveða að fara til Ekvador saman í janúar á næsta ári!!

Svona í stuttu máli

Fréttir frá Danmörku
Jæja þá eru liðnar rétt rúmar 2 vikur síðan ég flutti til Danmörku.

Ég lagði af stað 2. febrúar með ekki svo góðri byrjun – að borga 12.000 kr í yfirvigt með Iceland Express :-/  Það er ekkert grín að vera að fljúga í kreppunni, auðvitað reynt að tína af manni eins mikinn pening og mögulegt er.

Ég lenti svo í Kaupmannahöfn nokkrum tímum seinna, þar sem ég gisti hjá Kristian vini mínum, homma sem býr í Österbro, sem ég kynntist á ferðalagi um Bólivíu snemma á síðasta ári. Hann var alveg NÝ fluttur inn í íbúðina sína, hafði í raun ekki einu sinni vígt hana enn, heldur gisti hjá foreldrum sínum á meðan hann var að standsetja íbúðina sína. Ég var búin að fá að krefjast þess að fá að hjálpa honum að mála, en þegar ég loks kom var hann nú búinn að því en hafði stokkið í IKEA til að kaupa sér innbú. Ég fékk því að hjálpa honum að púsla saman húsgögnunum í staðinn

Kristian bauð mér að geyma eitthvað af dótinu mínu í geymslu hjá sér, sem ég má svo sækja hvenær sem mér sýnist, svo ég þyrfti ekki að borga yfirvigt aftur, því ég átti aftur að fljúga, þetta skiptið með Cimber air til Álaborgar. Flugið var frábært og eins ódýr og flugmiðinn var (50% ódýrari en lestarmiðinn), þá fékk maður meira að segja ókeypis appelsínusafa og samloku. Eitthvað sem má kallast merkilegt af íslenskum standard þar sem gæði íslensku flugfélagana eru orðin NÚLL. Nei, -25.

Ég fékk samt fljótlega að komast að því að það hefði kannski eftir allt verið gáfulegra að taka lest, þó hún tæki lengri tíma, þar sem ég hefði getað tekið allan farangurinn minn með mér, og ekki þurfti að þvælast neinar vegalengdir með hann, því Kristian býr rétt hjá lestarstöðinni í Köben, svo eru bara ein skipti á leiðinni til Hanstholm, úr beinu lestinni til Thisted, yfir í strætó til Hanstholm en það er á nákvæmlega sama stað, rúturnar fara bara af bílaplaninu á lestarstöðinni.

En í staðinn þurfti ég að, skilja 50% af farangrinum eftir hjá Kristian, fara með lest frá Österbro í Köben til Kastrup, svo labba alveg 1 km yfir í innanlandsflugið (fór engin rúta milli utanlands og innanlandsflugvallanna akkúrat á þessum tíma svo ég vissi til ), RÉTT komst í vélina á réttum tíma, lenda í Álaborg, taka strætó inn í miðbæ, missa af stoppinu, taka annan strætó til baka, fara inn á rútustöð Álaborgar og bíða þar í næstum 3 klst, taka rútu til Thisted og svo hoppa upp í fyrrnefndan strætó til Hanstholm. Svo tók Jensi á móti mér í Hanstholm Centrinu (lítil verslunarmiðstöð) þar sem við löbbuðum heim

Ég var komin til Hanstholm 4. febrúar, skrapp til Thisted til að sækja um danska kennitölu og flytja lögheimili mitt 5. febrúar og byrjaði svo að vinna föstudaginn 6. febrúar.

Vinnan hefur svo bara gengið vel. Ég er í pökkunardeildinni, og fyrir þá sem ekki vita, þá er það í fiski hér í Hanstholm, í fyrirtæki sem heitir Hesselholt. Er þar með tæpar 109 DKK á tímann (2.100 ISK), og eftir því sem ég skil rétt, í kringum 11.000 DKK (212.000 ISK) útborgað. Venjulega er fólk hér að borga um 42% (eða 43%) í skatt en ég vildi ekki láta skrá mig í þjóðkirkjuna, svo af mér er tekinn 39% skattur

Núna er ég s.s. komin með:

Vinnu

Danska kennitölu

Skattkort

Danskan bankareikning

Debetkort

Danskan GSM: 5225 3980

… og núna nýjustu fréttir: ÍBÚÐ!!!!

Ég var í dag að fá grænt ljós á raðhúsið sem ég var að sækja um, en það er 59 fm, með stofu, eldhúsi, baði og svefnherbergi og ógó næs verönd! Kostar tæpar 3.000 DKK á mánuði og má þess vegna flytja inn á morgun! En ég þarf að redda hústryggingarláninu, en Hreppurinn lánar manni fyrir því, þarf bara að tala við þá þar (eða reyndar Sigrún systir :-p )

Svo fékk ég að prófa að keyra VESPU í fyrsta skiptið um daginn!!!! Ólafur frændi Hönnu kom alveg sérstaklega með vespuna sína til að kenna mér, Sigrún og þau voru búin að plana þetta LÖNGU áður en ég kom, svo þó mér lytist EKKERT á hugmyndina, alveg skíthrædd við svona mótorhjóladæmi, þá varð ég að gefa eftir – og það var bara hrikalega mikið fjör!! Og ég er víst besti nemandinn sem hann hefur fengið so far

Svo hef ég líka síðustu vikuna verið að BERJAST við það að ljúka TEFL (Teaching English as a Foreign Language) námskeiðinu sem ég sótti um í ágúst en hefur fengið að sitja á hakanum vegna annríkis á Íslandi. Lokaverkefnið var alveg SKÍTERFITT og ætlaði mér ALDREI að takast að komast í gegnum það, svo þegar það tókst, var það ekki rétt, og þurfti að reyna aftur, var aftur vitlaust, og byrjaði ALVEG upp á nýtt og þá gaf kennarinn mér EINN annan séns til að klára þetta því það vantaði svo lítið upp á – og viti menn   Nú er ég komin með leyfi til að kenna við enskuskóla út um allan heim!

Svo tókst mér loksins að hringja í Yeimi, stelpuna mína úti í Guatemala og í mömmu hennar. Þar var alveg heilmikið að frétta. Hún er farin að stunda tölvunám, svo hún geti haft samband við mig í gegnum netið – mátti velja milli matreiðslu, baksturs, leiklistar eða tölvunáms og hún valdi að fá að læra á tölvur. Sem betur fer. Og svo var mamma hennar að segja mér að Yeimi er varla búin að gera annað en að læra upp á síðkastið, því hún þarf að taka 3 bekki á einu ári, því hún er að verða 15 ára á þessu ári. Og mér til mikillar hamingju, þá er hún að klára grunnskólann, er núna að taka 4., 5. og 6. bekk (eru bara 6 bekkir í grunnskóla þarna) á þessu ári, við skólann Jóvenes de la Victoria, og svo fer hún í framhaldsskóla á næsta ári!! Hugsið ykkur – áður en ég fór að styrkja hana var hún 12 ára og hafði aldrei gengið í skóla, kunni hvorki að lesa né skrifa… nú er hún að vara að útskrifast! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er stolt, og gefur manni svo sannarlega eitthvað til að lifa fyrir!!! Og hana langaði alltaf að fara í læknisfræði (þegar hún var 12 ára) en núna er hún farin að vera hrædd um að hún þoli ekki að sjá blóð og vill frekar læra ferðamálafræði eins og guðmóðir hennar (ég)   En ég vildi fyrst og fremst að hún leggi áherslu á að læra vel og vandlega ensku, því það er eitthvað sem á eftir að skipta hana rosalega miklu máli þegar kemur að vinnumöguleikum þarna úti. Ég er búin að vera að skoða möguleikan á að senda hana í enskuskóla núna á næsta ári þegar það fer að róast aðeins hjá henni, þegar hún þarf ekki að læra svona rosalega mikið. Ég ætla svo að fara á fullt að athuga möguleikan á því hvort hún geti komið hingað (til DK) í nám og/eða vinnu þegar hún er orðin lögaldra (eftir 3 ár).

En jæja HJÚKK. Það var víst kominn tími á þetta blogg.

Hérna er símanúmerið mitt og nýja heimilisfangið mitt:

Þrúður Helgadóttir,

Bygmarken 27,

7730 Hanstholm,

DANMARK.

GSM: +45 5225 3980

Læt ykkur vita þegar ég verð komin með heimasíma, og svo er von á að ég verði meira á netinu þegar ég kem tölvunni minni loksins í netsamband :-p

Until next time!

Frábært mótmæli!
Fór á Austurvöll kl. 15 í dag, laugardag, en þar var mótmælt Davíð Oddsyni og mælt með því að hann verði rekinn eða að hann segi sjálfur af sér. Þvílíkur fjöldi fólks var á staðnum og var torgið stútfullt eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Fjölmiðlar fóru augljóslega ekki með rétt mál, sem sögðu að þarna væru um 400 manns. Þeir kunna klárlega ekki að telja, eða eru hræddir um að verða ritskoðaðir.

Hvet ykkur öll að koma næsta laugardag kl. 15 en þá verða aftur mótmæli!

Kreppan I
Segir þetta ekki allt sem segja þarf?

“The I.M.F.’s intervention in Iceland would underline the extraordinary reversal in the country’s fortunes after a decade-long, debt-fueled binge by the country’s banks, businesses and some citizens. ()”

Þessir menn sem talað er um í þessari setningu úr grein hjá dagblaðinu New York Times, valda- og peningagráðugir forsvarsmenn bankanna, ríkisbubbar og stjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar eru þeir sem hafa gert skaðan af heimskreppunni sem við erum að ganga í gegnum núna, jafn slæman og raun ber vitni. Þeir hafa orðið til þess að setja Íslenska Ríkið, ásamt okkur venjulegu Jón og Gunnu, á hausinn og svipta okkur sjálfstæðinu. Grátlegt að nokkrir ríkisbubbar hafi fengið að leika sér í svona mörg ár með svona mikla penginga og svo þurfa þeir sem ekkert hafa af sér gert að borga dýrast af öllum.

Þessir menn eiga að bera ábyrgðina af gerðum sínum, ætti að fangelsa þá, gefa út á þá fjárnám, hirða allar þeirra eignir og peninga upp í skuldir þessara banka sinna, hérlendis sem og erlendis.

Verstur þykir mér þó þessi, sem gaf út með ríkisstjórn sinni opið leyfi til þess að bankar gætu skuldsett sig meira en nokkur gæti mögulega hugsað sér.

Mæli með að allir leggist á eitt og skrái sig í grúppuna

NÝJAN SEÐLABANKASTJÓRA

á Facebook.

Bendi ég einnig á yfirlýsingu Sigríðar I. Ingadóttur um afsögn sína úr bankaráði Seðlabankans:

Af Visir.is:

“Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem situr í bankaráði Seðlabankans ætlar að segja sig úr stjórn bankans. Hún mun tilkynna forseta alþingis um afsögn sína í kvöld. Sigríður segir Seðlabankann bera mikla ábyrgð á þeim mistökum sem gerð hafa verið undanfarið og telur að mikilvægt sé að sátt ríki meðal þjóðarinnar um stjórn Seðlabankans.”

Yfirlýsingu Sigríðar má sjá hér að neðan:

„Undanfarin ár, mánuði, vikur og daga hafa verið gerð alvarleg mistök í hagstjórn Íslands og stjórn fjármálakerfisins. Seðlabanki Íslands ber mikla ábyrgð á þeim mistökum. Nú er svo komið að íslenska hagkerfið er að hruni komið og munum við Íslendingar þurfa að byggja það upp á komandi árum og færa gríðarlegar fórnir.

Til að sem bestur friður náist um það uppbyggingarstarf sem framundan er tel ég mikilvægt að sátt ríki meðal þjóðarinnar um stjórn Seðlabankans. Það er mitt álit að til að svo geti orðið verði að skipta um bankastjórn í Seðlabanka Íslands. Ég hvet því bankastjóra Seðlabanka Íslands, Davíð Oddsson, Eirík Guðnason og Ingimund Friðriksson, til að axla sína ábyrgð á mistökunum og segja af sér nú þegar. Sjálf mun ég tilkynna forseta Alþingis afsögn mína úr bankaráði Seðlabanka Íslands þegar í kvöld. Ég bið þjóðina afsökunar á því að hafa ekki axlað mína ábyrgð fyrr.”

Nokkrar skemmtilegar
Var að skoða ýmsar skemmtilegar myndir á netinu… Hér koma nokkrar!

Rosalegt fjör!

Vegetarian Festival, Phuket, Tælandi. Jájá…

Börn bíða í röð eftir að fá að skipta leikfangabyssunum sínum fyrir almennileg

leikföng í Caracas, Venesúela, en það er tilraun hjá ríkisstjórninni til að sporna við glæpum

Weilheim í Þýskalandi

Kóngafólk borar líka í nefið: Willem-Alexander Hollandsprins borar hér í

nefið á Ólympíuleikunum í Kína.

Minningar
Mér þykir alltaf jafn leiðinlegt að heyra af dauðsföllum ævintýragjarnra ferðalanga, sérstaklega ef þeir eru íslenskir. En það gerðist núna síðast á sunnudaginn. Stelpan var myrt, í litlum strandbæ, í Dóminíska Lýðveldinu. en hún var myrt af manni þaðan sem hún átti í ástarsambandi við.

Málið er að megnið af Íslendingum trúa ekki á illt eðli fólks, að enginn myndi ganga svona langt. En það gerist erlendis.

Þessi atburður vakti minningar hjá mér og maður veltir því stundum fyrir sér hvað maður hefur stundum farið út á ystu nöp, eins og þegar ég fór til Argentínu, þá bjó ég í húsi utan við aðalbæinn og það hefði enginn tekið eftir því hefði eitthvað gerst þar, en í lok dvalar minnar þar var ýmislegt orðið nokkuð skuggalegt af því sem hafði gerst og ég spyr mig hvort þetta hefði getað endað á sama veg og hjá íslensku stelpunni í Dóminíska Lýðveldinu, hefði ég ekki komið heim……