Archive for the ‘Pólitík’ Category
Kreppan I
Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
“The I.M.F.’s intervention in Iceland would underline the extraordinary reversal in the country’s fortunes after a decade-long, debt-fueled binge by the country’s banks, businesses and some citizens. ()”
Þessir menn sem talað er um í þessari setningu úr grein hjá dagblaðinu New York Times, valda- og peningagráðugir forsvarsmenn bankanna, ríkisbubbar og stjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar eru þeir sem hafa gert skaðan af heimskreppunni sem við erum að ganga í gegnum núna, jafn slæman og raun ber vitni. Þeir hafa orðið til þess að setja Íslenska Ríkið, ásamt okkur venjulegu Jón og Gunnu, á hausinn og svipta okkur sjálfstæðinu. Grátlegt að nokkrir ríkisbubbar hafi fengið að leika sér í svona mörg ár með svona mikla penginga og svo þurfa þeir sem ekkert hafa af sér gert að borga dýrast af öllum.
Þessir menn eiga að bera ábyrgðina af gerðum sínum, ætti að fangelsa þá, gefa út á þá fjárnám, hirða allar þeirra eignir og peninga upp í skuldir þessara banka sinna, hérlendis sem og erlendis.
Verstur þykir mér þó þessi, sem gaf út með ríkisstjórn sinni opið leyfi til þess að bankar gætu skuldsett sig meira en nokkur gæti mögulega hugsað sér.
Mæli með að allir leggist á eitt og skrái sig í grúppuna
NÝJAN SEÐLABANKASTJÓRA
á Facebook.
Bendi ég einnig á yfirlýsingu Sigríðar I. Ingadóttur um afsögn sína úr bankaráði Seðlabankans:
Af Visir.is:
“Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem situr í bankaráði Seðlabankans ætlar að segja sig úr stjórn bankans. Hún mun tilkynna forseta alþingis um afsögn sína í kvöld. Sigríður segir Seðlabankann bera mikla ábyrgð á þeim mistökum sem gerð hafa verið undanfarið og telur að mikilvægt sé að sátt ríki meðal þjóðarinnar um stjórn Seðlabankans.”
Yfirlýsingu Sigríðar má sjá hér að neðan:
„Undanfarin ár, mánuði, vikur og daga hafa verið gerð alvarleg mistök í hagstjórn Íslands og stjórn fjármálakerfisins. Seðlabanki Íslands ber mikla ábyrgð á þeim mistökum. Nú er svo komið að íslenska hagkerfið er að hruni komið og munum við Íslendingar þurfa að byggja það upp á komandi árum og færa gríðarlegar fórnir.
Til að sem bestur friður náist um það uppbyggingarstarf sem framundan er tel ég mikilvægt að sátt ríki meðal þjóðarinnar um stjórn Seðlabankans. Það er mitt álit að til að svo geti orðið verði að skipta um bankastjórn í Seðlabanka Íslands. Ég hvet því bankastjóra Seðlabanka Íslands, Davíð Oddsson, Eirík Guðnason og Ingimund Friðriksson, til að axla sína ábyrgð á mistökunum og segja af sér nú þegar. Sjálf mun ég tilkynna forseta Alþingis afsögn mína úr bankaráði Seðlabanka Íslands þegar í kvöld. Ég bið þjóðina afsökunar á því að hafa ekki axlað mína ábyrgð fyrr.”
